Entries tagged with “matur” from Ég elska Tokyo

Nakamoto Ramen

nkmoto1.jpg Fyrir ótrúlega góðar núðlur, sem eru örlítið í sterkari kantinum, er Nakamoto málið.  Þetta er lítil keðja, aðeins með 8 útibú sem eru dreifð um stór-Tokyo svæðið.  Ramen-ið sem þeir sérhæfa sig í er miso ramen sem þýðir að aðalhráefnið í núðlusúpunni er miso.  Galdurinn við þeirra útgáfu er að þeir blanda miso-ið við sterkt chilli sem að umturnar bragðinu svo að súpan bragðast lítið sem ekkert eins og miso.

nkmoto2.jpgAllir réttirnir á matseðlinum eru flokkaðir eftir styrkleika, allt frá einum loga upp í fimm loga. Fyrir þá sem að sem að finnst mátulega sterkur matur góður (t.d. indverskur) er gott að byrja á tveimur. Fyrir þá sem eru ekki mikið fyrir sterkan mat er einnig hægt að fá ramen sem að er ekki sterkt. Í hverjum mánuði kynna þeir nýjan rétt sem þeir framreiða í takmarkaðan tíma og er einnig vert að skoða þá. Sem dæmi má sjá á myndinni að ofan rétt sem þeir voru með sumarið 2008 þar sem súpan var bragðbætt með tómat allt toppað með steiktu grænmeti.

Þessi staður eins og svo margir aðrir nota matarmiða sem þýðir að þú setur pening í sjálfsala, velur það sem þú vilt, færð svo miða með pöntuninni og afganginn.  Miðann læturðu starfsmanninn fá og hann færir þér það sem þú pantaðir.  Einnig er vert að minnast á að þessi staður er einstaklega vinsæll og oft er hálftíma til klukkutíma bið eftir sæti.  Til að forðast bið er best að fara um eftirmiðdaginn eða seint á kvöldin.

Hentugasta útibúið (og það sem er auðveldast að finna) er í Shinjuku en það er í undir 10 mínútna göngufjarlægð frá stöðinni. Hér er íslenskað kort til að komast þangað og svona lítur staðurinn út (nb. hann er í kjallara og ekki sá sami og á myndinni hér að ofan).

Nakamoto Ramen
東京都新宿区西新宿7-8-11
Shinjuku-ku, Nishi-Shinjuku 7-8-11 (Kort)

Elephant Cafe

Elephant Cafe er ágætis "asískur" veitingastaður staðsettur í Shibuya meðal annars.  Staðurinn er mjög stór, og því auðvelt að fá borð og hann er einnig stutt frá lestarstöðinni.  Verðin eru mjög svipuð og á svipuðum veitingastöðum eða um 2-3000 jen á manninn fyrir mat með drykkjum inniföldum.

Matseldin sem er á boðstólum er blanda af víetnömskum, taílenskum, kínverskum mat blandað með hinu og þessu frá öðrum löndum innan Asíu.  Maturinn er prýðilegur en það sem heillar mest við staðinn eru innréttingarnar (þar á meðal risa Búddalíkneski inni á miðjum staðnum) og andrúmsloftið þar inni.

Til að komast þangað er farið út um Hachiko Exit á Shibuya lestarstöðinni, og svo yfir stóru gatnamótin í átt að Starbucks.  Þaðan er farið meðfram götunni til vinstri, yfir næstu gatnamót og örlítið upp brekkuna (framhjá verslunarmiðstöðinni 109) en þar er staðurinn fljótlega á hægri hönd á 5. hæð.

Elephant Cafe
東京都渋谷区道玄坂2-29-5 ザ・プライム5F
Shibuya-ku, Dougenzaka 2-29-5 (Kort)

Mos Burger

Mos Burger er einn af vinsælustu hamborgarakeðjunum í Japan og er japönsk að uppruna.

Hamborgararnir eru þannig frábrugðnir venjulegum hamborgurum að kjötið er blandað með lauk og kryddum svo að bragðið minnir einna helst á kjötbollur frekar en klassískan hamborgara.  Aðalsmerki staðarins er eins konar salsa sósa sem að þeir setja á borgarana sem að er mjög ljúffeng.  Verðið er mjög viðráðanlegt eða um 600-700 yen fyrir hamborgara með frönskum og gosdrykk.

Um gervallt Japan eru um 1.500 útibú, fjölmörg af þeim eru staðsett í Tokyo svo enginn vandi er að finna þennan stað á rölti um borgina.  Hefðbundin útibú líta svona út:  1, 2, 3.  Hér að neðan er staðsetning eins útibúanna í Shinjuku sem er stutt frá stöðinni.


Mos Burger
東京都新宿区西新宿7-1-8
Shinjuku-ku, Nishi-Shinjuku 7-1-8 (Kort)

First Kitchen

fk.jpgFirst Kitchen er ein af frægari skyndibitakeðjunum í Japan sem er japönsk að uppruna.  Þeir bjóða upp á nokkrar tegundir af hamborgurum en eru einnig með pasta, pizzur og aðra hluti á boðstólum.  Matseðill þeirra breytist eftir árstíðum og oft er hægt að fá sérkennilegan japanskan, en mjög ljúffengan, skyndibita þar.

Verðið er afar hefðbundið eða um 600-700 jen fyrir máltíð með drykk og frönskum inniföldum.  Útibúin eru mörg talsins en helst er að minnast á Shinjuku útibúið sem að er í stuttri vegalengd frá South Exit lestarstöðvarinnar.  Farið er út um South Exit, beygt til hægri um leið og labbað meðfram lestarstöðinni niður að næstu gatnamótum þar sem First Kitchen er hinum megin við götuna á horninu.

First Kitchen
東京都新宿区西新宿1-18-3
Shinjuku-ku, Nishi-Shinjuku 1-18-3 (Kort)

"Depachika"

Í langflestum "department store" í Japan er kjallarahæðin undirlögð litlum verslunum sem selja ýmis góðgæti.  Kökur af ýmsum gerðum, sushi-bakkar, ýmist snakk og nammi er einungis brot af því lostæti sem er á boðstólum.   Þessar verslanir eru saman kallaðar depachika en það orð er samsett úr orðunum depaato ("department store") og chika ("niður" eða "kjallari").  Hægt er að lesa sér meira til um þetta fyrirbæri hér.

Frægustu af þessum verslunarklösum eru Seibu, Parco, Tokyu, Mitsukoshi, Isetan, Odakyu og Matsuzakaya.  Hægt er að finna þær á (og í) flestum af stærri lestarstöðvunum í kjarna Tokyo eins og Ikebukuro, Shibuya, Shinjuku, Ebisu, Ueno og víðar.

Tenka Sushi

Tenka Sushi er keðja af sushi stöðum sem er með fjölmörg útibú í Tokyo.  Mest heillandi við þessa staði er verðið sem er í ódýrari kantinum.

Þetta er kaiten sushi staður, eða "færibanda-súshí" (eins og sushi staðurinn á annarri hæð Iðu-hússins við Lækjargötu).  Maður situr semsagt við langt hringlaga afgreiðsluborð með kokkana innanborðs og maturinn rúllar framhjá þér á færibandi.  Diskarnir eru mismunandi litaðir og hver litur táknar ákveðið verð.  Þegar þú hefur borðað fylli þína eru diskarnir (og glösin) talin saman og þú greiðir fyrir matinn í afgreiðslunni við hurðina.

Eins og á flestum japönskum veitingastöðum er grænt te (ocha) og vatn (o-mizu) frítt.  Á borðinu er krani með heitu vatni fyrir teið en beðið er um vatnið og aðra drykki sérstaklega.  Fyrir framan þig ætti að vera innplastaður matseðill svo að ef að þú sérð ekki hvað þig langar í á færibandinu pantar þú það frá starfsmanni. 

Útibú þeirra í Shibuya er auðfundið, ef staðið er fyrir framan New South Exit lestarstöðvarinnar er haldið beint af augum út götuna, yfir litla brú að stórri götu.  Þegar komið er að henni er beygt til vinstri og eftir nokkra tugi metra sést staðurinn á vinstri hönd.

Tenka Sushi (Shibuya)
東京都渋谷区渋谷3-17-4
Shibuya-ku, Shibuya 3-17-4 (Kort)

Ninja Akasaka

ninja.jpgNinja Akasaka er einn af fjölmörgum þema-veitingastöðum í Tokyo en einn af þeim allra bestu.  Eins og nafnið gefur til kynna er þemað á þessum stað ninjur, leynimorðingjar og njósnarar hið forna.

Staðurinn er allur hinn flottasti og innréttaður eins og lítið þorp innan í helli.  Þegar komið er inn er þér boðið að taka ninja æfingakúrs sem er eiginlega bara aðeins rölt um forrými staðarins sem endar hjá hengibrú sem leiðir þig inn að aðalveitingasvæðinu.  Borðin eru í litlum herbergjum eða húsum sem eru misstór.

A la carte seðillinn er einungis á japönsku á heimasíðu staðarins en samsetta matseðlana er hægt að sjá hér.

Nauðsynlegt er að panta borð í tíma því það er oft uppbókað hjá þeim.  Síminn hjá þeim er 03-5157-3936 (+81 3-5157-3936 utan Japan).

Til þess að komast þangað þarf að taka Subway-ið til Akaska-mitsuke og þá annað hvort Ginza línuna eða Marunouchi línuna.  Auðveldast er að koma sér til Shinjuku með JR lestarkerfinu (lestarkort hér) og skipta þar yfir á Marunouchi subway línuna en þaðan eru það 5 stopp.  Til þess að komast þaðan frá lestarstöðinni er kort á ensku á forsíðu heimasíðu veitingastaðarins.

Ninja Akasaka
東京都千代田区永田町2-14-3
Chiyoda-ku, Nagata-cho 2-14-3 (Kort)


Yoshinoya

Yoshinoya mætti kalla japanska svarið við McDonalds.  Þetta er skyndibitastaður sem er með milljón og sjö útibú um allt Japan.  Þú kemst ekki langt án þess að sjá glitta í skilti frá þeim, nánast sama hvar þú ert.

Það sem er á boðstólum er gyudon en það er skál af hrísgrjónum með nautakjöti og lauk sem er steikt upp úr soja-baseraðri sósu.  Mjög ljúffengur matur og jafnframt mjög ódýr en ein skál kostar frá 400 - 700 yen eftir stærð og gerð.  Minnsta skálin dugar fínt ef maður vill bara grípa sér eitthvað smá á þönum um bæinn en ef manni svengir er gott að fá sér stærstu skálina.  Eins og á flestum öðrum samskonar matsölustöðum er kalt vatn og grænt te frítt.

Vanalega eru þessir staðir frekar litlir og eru með eitt langt afgreiðsluborð sem þeir þjóna við.  Auðveldast er að biðja um matseðil og benda svo á hvað maður vill.  Borgað er fyrir matinn eftir á og ekki er gefið þjórfé.

Ootoya

otoya1.jpg

Ootoya er einn af bestu "fljótlegu" matsölustöðunum í Japan sem sérhæfa sig í japönskum heimamat.  Þjónustan er góð og hröð, maturinn æði og svo er þetta allt saman mjög ódýrt í þokkabót.  Þetta er mjög útbreidd keðja og hægt er að finna útibú í öllum helstu borgum Japan.  Í Tokyo eru ótal staðir og oft er hægt að finna þá nálægt helstu lestarstöðvunum.  Ef að það sést glitta í skiltið hér að neðan ertu nálægt.

Boðið er upp á "set" máltíðir sem innifela einn aðalrétt, hrísgrjón, mísó-súpu og smá skammt af súrsuðu grænmeti.  Aðalréttirnir eru af ýmsum toga: tempura, katsudon, hambaagu, tekkadon og fleira.  Ef þetta er of framandi eru þeir líka með mjög góða súrsætan kjúkling og svo eru þeir með rétti á matseðlinum sem breytast mánaðarlega svo allir ættu að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi.

otoya2.jpg

Máltíðin kostar á bilinu 600 - 800 jen og á flestum stöðum er borgað fyrirfram fyrir matinn og svo er manni vísað til sætis.  Te og vatn er innifalið í verði en gosdrykkir og kaffi eru seldar gegn vægu verði.  Á sumum stöðum er "drink bar" fyrir sama verð og einn drykkur myndi kosta þig annars.

Þessir staðir eru vanalega við allar stærri lestarstöðvar svo best er bara að hafa augun opin á gangi um borgina.  Sem dæmi um einn stað er staður í Shibuya í mjög stuttri göngufjarlægð frá East Exit.  Ganga yfir gatnamótin í átt að Resona bankanum og þar aðeins lengra upp brekkuna er staður á 2. hæð á hægri hönd.  Sjá kort hér.

Ootoya (Shibuya East Exit)
東京都渋谷区渋谷2-20-11 2F
Shibuya-ku, Shibuya 2-20-11 2F (Kort)

Ichiran Ramen

Ichiran er lítil keðja af ramen stöðum með rétt undir 20 útibú um gervallt Japan.

Það sem er í boði er tonkotsu tegundin er núðlum en það er tegund af súpu sem að núðlurnar baða sig í.  Aðrar týpur eru til dæmis shoyu (soja), shio (salt) og miso (mísó).  Tonkotsu soðið er að hluta til gert úr svínabeinum þannig að þetta hentar augljóslega ekki fyrir grænmetisætur.  Meira um hinar ýmsu tegundir af japönskum ramen núðlum hér.

Staðurinn sker sig úr fyrir þær sakir að allir gestir fá einstaklingsbás og það er bannað tala hátt og hafa annan hávaða.  Þitt verk er að einbeita þér að núðlunum þar til að matnum er lokið, án allra truflana. 

Þegar komið er inn á staðinn er þar sjálfsali þar sem maður verður að kaupa sér matarmiða sem maður skiptir fyrir matinn.  Bara einn hlutur er á matseðlinum en það er þeirra "patent" tonkotsu-núðlur.  Hægt er svo að kaupa sér aukalega egg, auka núðlur, auka kjöt, bjór og fleira meðlæti.

ichirantafla.jpg

Þegar komið er inn á staðinn er ljósatafla sem gefur til kynna hvaða sæti eru laus.  Ef að það sést blátt tákn á töflunni þá er þar sæti laust.  Takkarnir eru í tveimur röðum eftir því í hvaða sætaröð það er, á hægri eða vinstri gangi.  Nb. stundum eru pör sem vilja sitja hlið við hlið á undan í röðinni og ef að stakt sæti losnar er ekki óalgengt að fólk hleypi manni fram fyrir sig.

Þegar þú hefur tekið þér sæti þá færðu réttan einskonar "tjekklista" þar sem þú getur hakað við hversu mikið af vorlauk, hvítlauk, chillisósu og svo framvegis á að vera í súpunni.  Einnig geturðu valið hversu vel soðnar núðlurnar eiga að vera og svo framvegis.  Þú munt mjög líklega fá eintak af tjekklistanum á japönsku en biddu starfsmanninn um leið um ensku útgáfuna með því að segja "eigo no menyu kudasai" eða einfaldlega "English menu, please".

ichiran.jpg

Útibú þeirra í Shibuya er opið allan sólarhringinn og því mjög hentugt eftir dvöl á skemmtistöðum í hverfinu.  Til að komast þangað frá Hachiko Exit lestarstöðvarinnar er farið inn götuna hægra megin við Starbucks hinum megin við stóru gatnamótin.  Þar rétt áður en komið er að Tower Records er útibúið í kjallara þar sem veitingastaðurinn Matsuya er á fyrstu hæð (gult skilti).

Ichiran Ramen
東京都渋谷区神南1-22-7
Shibuya-ku, Jinnan 1-22-7 (Kort)