Entries tagged with “harajuku” from Ég elska Tokyo
Fyrir áhugafólk um strigaskó er Harajuku einn af bestu stöðum í heimi að skoða sig um. Þar er að finna margar búðir svo sem þessa, Kicks Lab, sem að selja sjaldgæfa strigaskó frá öllum helstu merkjunum. Mest er um Nike og undirlínu þeirra Nike SB en annars er einnig hægt að finna skó frá Adidas, Vans, Puma, Supra og fleiri merkjum.
Verðin eru á miklu reiki, allt frá 5.000 upp í 150.000 jen fyrir
skóparið en dýrustu vörurnar eru þær sjaldgæfustu. Fyrir þá sem hafa leitað lengi að Air Jordan skóparinu úr barnæsku gætu haft heppnina með sér hér. Til að komast þangað er farið út um Takeshita Street Exit á Harajuku lestarstöðinni og gengið niður alla Takeshita Street þar til komið er að stórri breiðgötu. Þar er farið beint yfir götuna og beint af augum inn götuna við hliðina á búðinni Murasaki Sports. Eftir stuttan spöl er tekin fyrsta vinstri beygja og gengið um 100 metra og þar er búðin á hægri hönd. Athuga að á kortinu hér að neðan virðist þetta vera við breiðgötuna en þetta er í mjórri götu á bakvið.
[Minjagripir] The Daiso
Ein af óhjákvæmilegu afleiðingum þess að fara til Japan er að kaupa gríðarlegt magn af litlum minjagripum fyrir fjölskyldu og vini. Þegar listinn er orðinn langur er gott að geta rumpað þessu af með því að kaupa mikið af litlum gjöfum á einum stað og þar kemur The Daiso búðin að góðum notum.
Þetta er stór keðja af afsláttarbúðum sem selja vörur sínar flest allar á 105 jen. Þar er hægt að fá allt milli himins og jarðar en mikið úrval er af alls kyns vörum sem eru tilvaldar í minjagripi svo sem matprjónar, ýmis búsáhöld og alls kyns matvara.
Þessar búðir eru staðsettar um allt Japan en ein af stærri verslunum innan stór-Tokyo svæðisins er staðsett í Harajuku, stutt frá lestarstöðinni. Gengið er út um Takeshita Street Exit, farið yfir götuna og aðeins niður Takeshita Street þar sem hún er á vinstri hönd.
[Föt og skór] graniph
Graniph er sniðug búð fyrir boli og aðrar léttar flíkur. Þetta byrjaði sem voða lítið batterí sem einbeitti sér að því að gefa út boli með gæðahönnun en jafnframt ódýrt. Eins og þetta er orðið núna reka þeir stóra netverslun sem og að vera með búðir, 51 stykki í Japan og sitthvora í Taipei og Singapore.
Hönnunin sem er prentuð á bolina er ýmist fengin frá starfsmönnum graniph eða úr samstarfsverkefnum með utanaðkomandi aðilum. Einnig eru haldnar "design" keppnir á vegum graniph og fá sigurvegararnir bolina sína prentaða og dreift um allar búðir fyrirtækisins.
Skemmtilega við bolina þeirra að oft er notuð týpógrafía eða letur í hönnunina á bolina og geta þar oft leynst á milli smá engrish, eða "vitlaus" enska (sjá frekar hér). Harajuku útibúið er að finna á mjög svo hentugu korti superfuture yfir tískuverslanir Harajuku sem má finna hér.
[Öðruvísi] Sunnudagur í Harajuku
Ef að dvölin nær yfir allaveganna eina helgi er algjör nauðsyn að kíkja til Harajuku á einum sunnudeginum og taka rölt yfir til Yoyogi sem er næsti bær við.
Þegar farið er út um aðal-útgang (ekki Takeshita-dori Exit) skal halda út og beint af augum þar til komið er framhjá stöðvarbyggingunni og beygt svo til hægri. Þá ertu kominn á breiða göngubrú sem er yfir lestarteinana. Á þessari brú koma saman goth og lolita fólk (sjá frekar hér) sem og aðrir áhugasamir um framandi tísku, alla sunnudaga. Mikið er um að útlendingar fari og taki myndir þarna þannig að ekki vera feiminn að biðja um að fá að taka ljósmyndir af fólkinu.
Ef haldið er svo áfram yfir brúnna kemurðu að inngangnum í Meiji hofið sem er einnig vert að kíkja á.
Eftir stopp í hofinu geturðu farið þaðan beint til Yoyogi Park. Ef þú stendur fyrir framan innganginn að hofinu, beygirðu til vinstri og labbar meðfram hof-garðinum og tekur svo fyrstu beygju til hægri. Þaðan er það bara bein leið til Yoyogi Park. Snögglega á hægri hönd ættirðu að sjá meðlimi Tokyo Rockabilly Club að dansa við 60s japanska rockabilly músík en þeir koma saman allar helgar fyrir framan innganginn að Yoyogi Park.
Haltu áfram beinni leið eftir göngustígnum. Fljótlega ættirðu að rekast á tónlistarfólk spilandi meðfram göngustígnum en mörg bönd setja upp litla tónleika á þessum göngustíg til að vekja athygli á sér. Fleiri tónleika er hægt að sjá þegar farið er enn lengra eftir göngustígnum og yfir götuna á vinstri hönd.
Eftir labbið um garðinn er tilvalið að kíkja á Takeshita Street sem er göngugata með alls kyns búðum og veitingastöðum. Á þeirri götu eru mjög fáir yfir tvítugu en mikið er um ódýrar glingurbúðir, útsölufatnað og ódýra staði. Best er að koma sér aftur á lestarstöðina og labba framhjá aðal-útgangnum þar til þú kemur að Takeshita-dori Exit en þar ferðu yfir götuna og kemur að endanum á götunni.
Fyrir veitingstaði á þeirri götu get ég mælt með Ootoya sem að er í einni af fyrstu litlu götunum sem koma út frá Takeshita Street á vinstri hönd. Svo ef þú ert ævintýraskapi get ég mælt með hinum ótrúlega súra "all-you-can-eat" pasta-stað Tabasa sem er með hip hop þema. Hann liggur í kjallara alveg við endann á götunni hægra megin.
[Föt og skór] A Bathing Ape
A Bathing Ape, eða Bape, er eitt þekktasta japanska fatamerkið bæði þar í landi og víðar. Merkið var stofnað af Nigo, stílista og músíkant, í byrjun tíunda áratugarins. Í byrjun var þetta pínulítið batterí í tískuhverfinu Harajuku en er núna orðið að alþjóðulegu fyrirbæri með verslanir í New York, Los Angeles, London og víða um Asíu. Eftir auknar vinsældir fatalínunnar stækkaði Nigo við sig og bætti við lúxusbúðinni Bapexclusive, skóbúðinni Footsoldier, kvennamerkinu Apee, barnafötum undir merkinu Baby Milo, hárgreiðslustofunni Bape Cuts, kaffihúsinu Bape Café og fleira.
Fötin myndu flokkast undir "streetwear" en mikið af grafíkínni á fötunum sækir innblástur í Planet Of The Apes. Til þess að skoða hvað er í boði er hægt að skoða heimasíðu Bape.
Aðalbúðin og jafnframt fyrsta búðin sem var opnuð er í Harajuku og er staðsett í götunni bakvið Omotesando Hills verslunarmiðstöðina um það bil fyrir miðju þeirrar byggingar.