Entries tagged with “fljótlegt” from Ég elska Tokyo

Kohmen Ramen

kohmen1.jpg

Kohmen er afar vinsæll ramen núðlustaður með nokkur útibú dreifð um stór-Tokyo svæðið. Þeir framreiða allar vinsælustu tegundirnar af ramen (sjá hér) og einnig tan tan men.  Verðið er mjög svipað og á öðrum ramen stöðum í sama gæðaflokki eða 700-900 jen fyrir máltíðina.

kohmen2.jpg

Þegar komið er inn á staðinn tekur á móti þér þjónn sem vísar þér til sætis, ekki er þörf að kaupa matarmiða úr sjálfsala og gefa starfsmanni eins og á flestum svipuðum keðjum.  Matseðillinn er vel myndskreyttur svo auðvelt er að velja sér það sem lítur bragðgott út.  Þessi staður gerir allar þessar mismunandi tegundir af ramen núðlum mjög vel en fyrir þá sem finnst sterkur matur góður er tan tan men mjög bragðgott þar.

Auðveldast er að finna útibúið í Ikebukuro en til að komast þangað er farið út um Seibu East Exit á lestarstöðinni og beygt strax til hægri.  Þar er labbað beint meðfram Seibu verslunarmiðstöðinni, framhjá Starbucks og Illums en staðurinn er beint við hliðina á Illums á hægri hönd.

Kohmen Ramen
東京都豊島区南池袋1-18-22
Toshima-ku, Minami-Ikebukuro 1-18-22 (Kort)

Nakamoto Ramen

nkmoto1.jpg Fyrir ótrúlega góðar núðlur, sem eru örlítið í sterkari kantinum, er Nakamoto málið.  Þetta er lítil keðja, aðeins með 8 útibú sem eru dreifð um stór-Tokyo svæðið.  Ramen-ið sem þeir sérhæfa sig í er miso ramen sem þýðir að aðalhráefnið í núðlusúpunni er miso.  Galdurinn við þeirra útgáfu er að þeir blanda miso-ið við sterkt chilli sem að umturnar bragðinu svo að súpan bragðast lítið sem ekkert eins og miso.

nkmoto2.jpgAllir réttirnir á matseðlinum eru flokkaðir eftir styrkleika, allt frá einum loga upp í fimm loga. Fyrir þá sem að sem að finnst mátulega sterkur matur góður (t.d. indverskur) er gott að byrja á tveimur. Fyrir þá sem eru ekki mikið fyrir sterkan mat er einnig hægt að fá ramen sem að er ekki sterkt. Í hverjum mánuði kynna þeir nýjan rétt sem þeir framreiða í takmarkaðan tíma og er einnig vert að skoða þá. Sem dæmi má sjá á myndinni að ofan rétt sem þeir voru með sumarið 2008 þar sem súpan var bragðbætt með tómat allt toppað með steiktu grænmeti.

Þessi staður eins og svo margir aðrir nota matarmiða sem þýðir að þú setur pening í sjálfsala, velur það sem þú vilt, færð svo miða með pöntuninni og afganginn.  Miðann læturðu starfsmanninn fá og hann færir þér það sem þú pantaðir.  Einnig er vert að minnast á að þessi staður er einstaklega vinsæll og oft er hálftíma til klukkutíma bið eftir sæti.  Til að forðast bið er best að fara um eftirmiðdaginn eða seint á kvöldin.

Hentugasta útibúið (og það sem er auðveldast að finna) er í Shinjuku en það er í undir 10 mínútna göngufjarlægð frá stöðinni. Hér er íslenskað kort til að komast þangað og svona lítur staðurinn út (nb. hann er í kjallara og ekki sá sami og á myndinni hér að ofan).

Nakamoto Ramen
東京都新宿区西新宿7-8-11
Shinjuku-ku, Nishi-Shinjuku 7-8-11 (Kort)

Mos Burger

Mos Burger er einn af vinsælustu hamborgarakeðjunum í Japan og er japönsk að uppruna.

Hamborgararnir eru þannig frábrugðnir venjulegum hamborgurum að kjötið er blandað með lauk og kryddum svo að bragðið minnir einna helst á kjötbollur frekar en klassískan hamborgara.  Aðalsmerki staðarins er eins konar salsa sósa sem að þeir setja á borgarana sem að er mjög ljúffeng.  Verðið er mjög viðráðanlegt eða um 600-700 yen fyrir hamborgara með frönskum og gosdrykk.

Um gervallt Japan eru um 1.500 útibú, fjölmörg af þeim eru staðsett í Tokyo svo enginn vandi er að finna þennan stað á rölti um borgina.  Hefðbundin útibú líta svona út:  1, 2, 3.  Hér að neðan er staðsetning eins útibúanna í Shinjuku sem er stutt frá stöðinni.


Mos Burger
東京都新宿区西新宿7-1-8
Shinjuku-ku, Nishi-Shinjuku 7-1-8 (Kort)

First Kitchen

fk.jpgFirst Kitchen er ein af frægari skyndibitakeðjunum í Japan sem er japönsk að uppruna.  Þeir bjóða upp á nokkrar tegundir af hamborgurum en eru einnig með pasta, pizzur og aðra hluti á boðstólum.  Matseðill þeirra breytist eftir árstíðum og oft er hægt að fá sérkennilegan japanskan, en mjög ljúffengan, skyndibita þar.

Verðið er afar hefðbundið eða um 600-700 jen fyrir máltíð með drykk og frönskum inniföldum.  Útibúin eru mörg talsins en helst er að minnast á Shinjuku útibúið sem að er í stuttri vegalengd frá South Exit lestarstöðvarinnar.  Farið er út um South Exit, beygt til hægri um leið og labbað meðfram lestarstöðinni niður að næstu gatnamótum þar sem First Kitchen er hinum megin við götuna á horninu.

First Kitchen
東京都新宿区西新宿1-18-3
Shinjuku-ku, Nishi-Shinjuku 1-18-3 (Kort)

Yoshinoya

Yoshinoya mætti kalla japanska svarið við McDonalds.  Þetta er skyndibitastaður sem er með milljón og sjö útibú um allt Japan.  Þú kemst ekki langt án þess að sjá glitta í skilti frá þeim, nánast sama hvar þú ert.

Það sem er á boðstólum er gyudon en það er skál af hrísgrjónum með nautakjöti og lauk sem er steikt upp úr soja-baseraðri sósu.  Mjög ljúffengur matur og jafnframt mjög ódýr en ein skál kostar frá 400 - 700 yen eftir stærð og gerð.  Minnsta skálin dugar fínt ef maður vill bara grípa sér eitthvað smá á þönum um bæinn en ef manni svengir er gott að fá sér stærstu skálina.  Eins og á flestum öðrum samskonar matsölustöðum er kalt vatn og grænt te frítt.

Vanalega eru þessir staðir frekar litlir og eru með eitt langt afgreiðsluborð sem þeir þjóna við.  Auðveldast er að biðja um matseðil og benda svo á hvað maður vill.  Borgað er fyrir matinn eftir á og ekki er gefið þjórfé.