Entries tagged with “ebisu” from Ég elska Tokyo

Sapporo er heimsfrægur framleiðandi á bjór og einna besti bjórinn sem hann framleiðir heitir Yebisu.  Í einungis nokkurra mínútna göngufjarlægð frá Ebisu lestarstöðinni (á Yamanote JR línunni eða Hibiya subway línunni) er að finna Yebisu bjórsafnið.

Inni á safninu er að finna sögu Sapporo fyrirtækisins myndskreytta og ýmsan fróðleik um bruggunarferlið.  Með því athyglisverðara á safninu eru auglýsingarnar gegnum árin en þar sést hvernig aldagömul menning Japana blandaðist hægt og þétt við vestræn gildi yfir 20. öldina.

Í enda sýningarinnar er svo smökkunarherbergi þar sem maður getur bragðað allar helstu bjórtegundir fyrirtækisins og einnig rauðvín og hvítvín.  Eftir smakkið er gott að renna inn í minjagripaverslunina en hún er staðsett við innganginn.

Til að komast þangað er auðveldast að fara til Ebisu á JR Yamanote línunni.  Inni á lestarstöðinni er farið út um Yebisu Skywalk útganginn í átt að Yebisu Garden Place.  Þegar komið er út um útganginn ferðu yfir götuna og tekur létta vinstri beygju og labbar fram hjá verslunarmiðstöðinni sem blasir við en bjórsafnið er í húsinu við hliðina.  Húsið er merkt Sapporo en inngangur er í kjallara.

Yebisu Beer Museum
東京都渋谷区恵比寿4-20-1
Shibuya-ku, Ebisu 4-20-1 (Kort)