Entries tagged with “bjór” from Ég elska Tokyo
[Minjagripir] Yebisu/Sapporo bjórsafnið
Sapporo er heimsfrægur framleiðandi á bjór og einna besti bjórinn sem hann framleiðir heitir Yebisu. Í einungis nokkurra mínútna göngufjarlægð frá Ebisu lestarstöðinni (á Yamanote JR línunni eða Hibiya subway línunni) er að finna Yebisu bjórsafnið.
Inni á safninu er að finna sögu Sapporo fyrirtækisins myndskreytta og ýmsan fróðleik um bruggunarferlið. Með því athyglisverðara á safninu eru auglýsingarnar gegnum árin en þar sést hvernig aldagömul menning Japana blandaðist hægt og þétt við vestræn gildi yfir 20. öldina.
Í enda sýningarinnar er svo smökkunarherbergi þar sem maður getur bragðað allar helstu bjórtegundir fyrirtækisins og einnig rauðvín og hvítvín. Eftir smakkið er gott að renna inn í minjagripaverslunina en hún er staðsett við innganginn.
Til að komast þangað er auðveldast að fara til Ebisu á JR Yamanote línunni. Inni á lestarstöðinni er farið út um Yebisu Skywalk útganginn í átt að Yebisu Garden Place. Þegar komið er út um útganginn ferðu yfir götuna og tekur létta vinstri beygju og labbar fram hjá verslunarmiðstöðinni sem blasir við en bjórsafnið er í húsinu við hliðina. Húsið er merkt Sapporo en inngangur er í kjallara.