Entries tagged with “allsstaðar” from Ég elska Tokyo
[Fljótlegt] Mos Burger
Hamborgararnir eru þannig frábrugðnir venjulegum hamborgurum að kjötið er blandað með lauk og kryddum svo að bragðið minnir einna helst á kjötbollur frekar en klassískan hamborgara. Aðalsmerki staðarins er eins konar salsa sósa sem að þeir setja á borgarana sem að er mjög ljúffeng. Verðið er mjög viðráðanlegt eða um 600-700 yen fyrir hamborgara með frönskum og gosdrykk.
Um gervallt Japan eru um 1.500 útibú, fjölmörg af þeim eru staðsett í Tokyo svo enginn vandi er að finna þennan stað á rölti um borgina. Hefðbundin útibú líta svona út: 1, 2, 3. Hér að neðan er staðsetning eins útibúanna í Shinjuku sem er stutt frá stöðinni.
[Fljótlegt] First Kitchen
First Kitchen er ein af frægari skyndibitakeðjunum í Japan sem er japönsk að uppruna. Þeir bjóða upp á nokkrar tegundir af hamborgurum en eru einnig með pasta, pizzur og aðra hluti á boðstólum. Matseðill þeirra breytist eftir árstíðum og oft er hægt að fá sérkennilegan japanskan, en mjög ljúffengan, skyndibita þar.Verðið er afar hefðbundið eða um 600-700 jen fyrir máltíð með drykk og frönskum inniföldum. Útibúin eru mörg talsins en helst er að minnast á Shinjuku útibúið sem að er í stuttri vegalengd frá South Exit lestarstöðvarinnar. Farið er út um South Exit, beygt til hægri um leið og labbað meðfram lestarstöðinni niður að næstu gatnamótum þar sem First Kitchen er hinum megin við götuna á horninu.
[Tölvur og tækni] BIC Camera
Kostir Bic Camera eru gott vöruúrval og yfirleitt góð verð. Þeir eru einnig með punktakerfi sem er mjög hentugt við stór innkaup. Punktarnir eru mældir í prósentum af söluverði og hver punktur táknar eitt jen. Best er að nota punktana í að kaupa önnur raftæki (t.d. að nota punkta af myndavélakaupum til að kaupa mp3 spilara) frekar en að eyða þeim í minniskort og töskur utan um raftækin þar sem að þeir hlutir eru mun dýrari þar en annars staðar (í búðum í raftækjahverfinu Akihabara til dæmis).
Til þess að geta notast við punktakerfið hjá þeim er nauðsynlegt að gerast meðlimur í viðskiptaklúbb Bic Camera en það tekur einungis örfáar mínútur að gera við afgreiðslukassann.
[Karaoke] Karaoke
Í stað þess að gera margar færslur um hina mismunandi karaoke staði sem er í boði verður þetta allt sameinað í eina færslu til hagræðingar.
Fyrst af öllu er vert að útskýra dálítið hvernig þetta fyrirbæri er í Japan. Staðlaða formið af karaoke stað er karaoke box sem að mætti einna helst líkja við hótel, fremur en karaoke bar eins og við þekkjum af Ölver til dæmis. Venjulegt karaoke box er oft á mörgum hæðum með allt frá 10 uppí 100 herbergi sem eru búin fullkomnum karaoke græjum, ljósagræjum (blacklight og diskóljós) og innanhússíma (til að panta mat og drykk).
Vinsælustu keðjurnar af karaoke stöðum eru Shidax, Karaoke-kan (カラオケ館) og Utahiroba (歌広場).
Þegar komið er inn á staðinn labbarðu vanalega beint inn í móttökurými með afgreiðsluborði þar sem karaoke herbergið er pantað. Fundið er herbergi sem passar fyrir fólksfjöldann og svo þarftu að ákveða hvort að eigi að vera innifalið "all you can drink" (á japönsku nomihoudai) eða ekki. Svo er ákveðinn tíminn, minnst er hægt að taka hálftíma og lengst er hægt að kaupa "alla nóttina" en það er um 5 tímar. Þegar búið er að ganga frá pöntuninni færðu míkrafóna og ert sendur uppá herbergið. Svo er það bara að syngja og panta sér drykk.
Vélin sjálf sem spilar karaoke lögin er mjög líklega öll á japönsku, þar á meðal fjarstýringin. Ekki örvænta þó, þegar þú hefur fundið þér lag sem þú vilt syngja (nb. "ensku" lögin eru oftast aftast í risamöppunum af lögum á borðinu) að þá seturðu inn númerið á laginu í fjarstýringuna og ýtir svo á græna takkann. Rauði takkinn stoppar svo lagið ef þú ert búinn að fá nóg.
Ef að síminn hringir eftir einhvern tíma er það líklegast verið að tilkynna ykkur að tíminn sé að verða útrunninn. Oftast er hringt tíu mínútum áður en tíminn rennur upp og látið vita. Þá er jafnframt hægt að framlengja tímann, vilji menn gera það. Þegar öllu er lokið er farið niður og aftur í móttökuna þar sem gert er upp.
Shidax: (1, 2, 3)
Karaoke-kan: (1, 2, 3)
Utahiroba: (1, 2, 3)
Hér dæmi um ytra útlit staðanna til að þekkja staðina á vappi um borgina. Hér að neðan er svo karaoke staðurinn sem var notaður í kvikmyndinni Lost in Translation, herbergið sem þau notuðu er víst númer 601 en hægt er að fá það staðfest með því að spyrja starfsfólkið.
[Fljótlegt] Tenka Sushi
Tenka Sushi er keðja af sushi stöðum sem er með fjölmörg útibú í Tokyo. Mest heillandi við þessa staði er verðið sem er í ódýrari kantinum.
Þetta er kaiten sushi staður, eða "færibanda-súshí" (eins og sushi staðurinn á annarri hæð Iðu-hússins við Lækjargötu). Maður situr semsagt við langt hringlaga afgreiðsluborð með kokkana innanborðs og maturinn rúllar framhjá þér á færibandi. Diskarnir eru mismunandi litaðir og hver litur táknar ákveðið verð. Þegar þú hefur borðað fylli þína eru diskarnir (og glösin) talin saman og þú greiðir fyrir matinn í afgreiðslunni við hurðina.
Eins og á flestum japönskum veitingastöðum er grænt te (ocha) og vatn (o-mizu) frítt. Á borðinu er krani með heitu vatni fyrir teið en beðið er um vatnið og aðra drykki sérstaklega. Fyrir framan þig ætti að vera innplastaður matseðill svo að ef að þú sérð ekki hvað þig langar í á færibandinu pantar þú það frá starfsmanni.
Útibú þeirra í Shibuya er auðfundið, ef staðið er fyrir framan New South Exit lestarstöðvarinnar er haldið beint af augum út götuna, yfir litla brú að stórri götu. Þegar komið er að henni er beygt til vinstri og eftir nokkra tugi metra sést staðurinn á vinstri hönd.
[Fljótlegt] Yoshinoya
Það sem er á boðstólum er gyudon en það er skál af hrísgrjónum með nautakjöti og lauk sem er steikt upp úr soja-baseraðri sósu. Mjög ljúffengur matur og jafnframt mjög ódýr en ein skál kostar frá 400 - 700 yen eftir stærð og gerð. Minnsta skálin dugar fínt ef maður vill bara grípa sér eitthvað smá á þönum um bæinn en ef manni svengir er gott að fá sér stærstu skálina. Eins og á flestum öðrum samskonar matsölustöðum er kalt vatn og grænt te frítt.
Vanalega eru þessir staðir frekar litlir og eru með eitt langt afgreiðsluborð sem þeir þjóna við. Auðveldast er að biðja um matseðil og benda svo á hvað maður vill. Borgað er fyrir matinn eftir á og ekki er gefið þjórfé.