Entries tagged with “ódýrt” from Ég elska Tokyo

etsuzan.jpgEtsuzan Ramen er ramen staður sem er að finna í Koenji við yfirbyggða verslunargötu í stuttri fjarlægð frá lestarstöðinni.  Aðalsmerki staðarins er súpan þeirra sem er frekar sjaldgæf blanda af svínabeina- og fiskbeinasoði.  Grunnverðið er 700 jen fyrir núðlurnar en svo er hægt að bæta við áleggjum svo sem harðsoðnu eggi, auka kjöti, vorlauk og svo framvegis.

etsuzanramen.jpgSúpan er í þykkri kantinum og er þessi blanda af fisk og svínaafurðum mjög sérstök.  Þeir sem að hafa óbeit á japönsku fiskibragði (eins og dashi) ættu að fara eitthvert annað en fyrir þá sem vilja prufa eitthvað nýtt og óhefðbundið er þetta góður staður til að prufa.

Etsuzan Ramen
東京都杉並区高円寺南4-25-4
Suginami-ku, Koenji-minami 4-25-4 (Kort)

Seibee Ramen

seibee1.jpg

Seibee er lítil keðja af ramen núðlustöðum með 2 útibú í Tokyo en annað þeirra er staðsett í Ueno.  Það sem er á boðstólum er miso ramen í mismunandi útfærslum og er þessi staður einn af betri stöðunum í Tokyo fyrir þessa tegund af ramen núðlum.

seibee2.jpgAðalsmerki staðarins eru þessir tveir réttir, annars vegar buta-miso (vinstra megin) þar sem í súpuna er bætt við steiktum baunaspírum og svínakjöti og hins vegar karanegi-miso (hægra megin) þar sem er bætt við sterkkrydduðum lauk og svínakjöti.

Staðurinn er staðsettur í sama hverfi og stóri almenningsgarðurinn Ueno Koen og er því tilvalið að kíkja á þennan stað eftir að skoða t.d. dýragarðinn og listasöfnin sem hægt er að finna í garðinum.

Til að komast á staðinn er farið út um Shinobazu Exit á Ueno lestarstöðinni og farið yfir götuna í átt til hægri.  Þar á horninu er risastór raftækjaverslun en farið er inn verslunargötuna vinstra megin við raftækjaverslunina og haldið áfram á beinni braut (gatan kvíslast einu sinni, þar halda beint áfram en ekki beygja) í um 5-10 mínútur þar til komið er að næstu stóru gatnamótum.  Þar er ekki farið yfir götuna en beygt upp til hægri og þar er Seibee Ramen um 50 metra upp götuna.  Sjá staðsetninguna hér.

Seibee Ramen
東京都台東区上野4-2-1
Taito-ku, Ueno 4-2-1 (Kort)

chandelier.jpg

Red Bar (eða Chandelier) er einn af þessum stöðum sem (vonandi enn) finnst ekki í neinum leiðsögubókum um Tokyo. Þetta er mjög sjarmerandi "after hours" bar staðsettur í Shibuya rétt hjá lestarstöðinni. Nafnið dregur hann af því að það eru ekkert nema ljósakrónur í loftinu og veggirnir eru rauðir.

Eins og áður hefur komið fram er þetta "after hours" staður og opnar því ekki fyrr en eftir miðnætti.  Sagan segir að eigandinn opni staðinn eftir eigin hentisemi oft og er því betra að kíkja þangað að minnsta kosti eftir 01:00 til að auka líkurnar á að hann sé opinn.  Ef kveikt er á lampanum fyrir utan hurðina er opið.

Einn aðalkosturinn við þennan stað er að drykkirnir eru ódýrir (500 jen) án þess að notað sé í þá hræódýrt sprútt.  Sérstaklega er hægt að fá góðan gin buck þarna en í honum er gin og kryddað og ósætt engiferöl.

Red Bar (Chandelier)
東京都渋谷区猿楽町2-11
Shibuya-ku, Sarugaku-cho 2-11 (Kort)

Elephant Cafe

Elephant Cafe er ágætis "asískur" veitingastaður staðsettur í Shibuya meðal annars.  Staðurinn er mjög stór, og því auðvelt að fá borð og hann er einnig stutt frá lestarstöðinni.  Verðin eru mjög svipuð og á svipuðum veitingastöðum eða um 2-3000 jen á manninn fyrir mat með drykkjum inniföldum.

Matseldin sem er á boðstólum er blanda af víetnömskum, taílenskum, kínverskum mat blandað með hinu og þessu frá öðrum löndum innan Asíu.  Maturinn er prýðilegur en það sem heillar mest við staðinn eru innréttingarnar (þar á meðal risa Búddalíkneski inni á miðjum staðnum) og andrúmsloftið þar inni.

Til að komast þangað er farið út um Hachiko Exit á Shibuya lestarstöðinni, og svo yfir stóru gatnamótin í átt að Starbucks.  Þaðan er farið meðfram götunni til vinstri, yfir næstu gatnamót og örlítið upp brekkuna (framhjá verslunarmiðstöðinni 109) en þar er staðurinn fljótlega á hægri hönd á 5. hæð.

Elephant Cafe
東京都渋谷区道玄坂2-29-5 ザ・プライム5F
Shibuya-ku, Dougenzaka 2-29-5 (Kort)

The Daiso

Te

Ein af óhjákvæmilegu afleiðingum þess að fara til Japan er að kaupa gríðarlegt magn af litlum minjagripum fyrir fjölskyldu og vini. Þegar listinn er orðinn langur er gott að geta rumpað þessu af með því að kaupa mikið af litlum gjöfum á einum stað og þar kemur The Daiso búðin að góðum notum.

Þetta er stór keðja af afsláttarbúðum sem selja vörur sínar flest allar á 105 jen.  Þar er hægt að fá allt milli himins og jarðar en mikið úrval er af alls kyns vörum sem eru tilvaldar í minjagripi svo sem matprjónar, ýmis búsáhöld og alls kyns matvara.

Þessar búðir eru staðsettar um allt Japan en ein af stærri verslunum innan stór-Tokyo svæðisins er staðsett í Harajuku, stutt frá lestarstöðinni.  Gengið er út um Takeshita Street Exit, farið yfir götuna og aðeins niður Takeshita Street þar sem hún er á vinstri hönd.

The Daiso
東京都渋谷区神宮前1-19-24
Shibuya-ku, Jingu-mae 1-19-24 (Kort)

Mos Burger

Mos Burger er einn af vinsælustu hamborgarakeðjunum í Japan og er japönsk að uppruna.

Hamborgararnir eru þannig frábrugðnir venjulegum hamborgurum að kjötið er blandað með lauk og kryddum svo að bragðið minnir einna helst á kjötbollur frekar en klassískan hamborgara.  Aðalsmerki staðarins er eins konar salsa sósa sem að þeir setja á borgarana sem að er mjög ljúffeng.  Verðið er mjög viðráðanlegt eða um 600-700 yen fyrir hamborgara með frönskum og gosdrykk.

Um gervallt Japan eru um 1.500 útibú, fjölmörg af þeim eru staðsett í Tokyo svo enginn vandi er að finna þennan stað á rölti um borgina.  Hefðbundin útibú líta svona út:  1, 2, 3.  Hér að neðan er staðsetning eins útibúanna í Shinjuku sem er stutt frá stöðinni.


Mos Burger
東京都新宿区西新宿7-1-8
Shinjuku-ku, Nishi-Shinjuku 7-1-8 (Kort)

UNIQLO

UNIQLO er smásölurisi á fatamarkaðnum í Japan og staðurinn til að fá ódýr og þægileg föt.  Fyrirtækið með mestu veltu og gróða af öllum japönsku fatakeðjunum og hefur verið í útbreiðslu til Bandaríkjanna og Evrópu.

Þrátt fyrir að selja ódýr föt eru gæðin líka til staðar og mætti líkja þessu við ódýrari útgáfu af American Apparel, þ.e. frekar látlaus föt á góðu verði.  Bolir eru frá 1.000 jenum, skyrtur og peysur frá 2.000 jenum og buxur frá 3.000 jenum.

UNIQLO hefur ótal útibú á landsvísu (um 800 verslanir) og er gott að muna eftir nafninu og lógóinu á vappi um borgina.  Hér er addressan á stóru útibúi þeirra í Prince Hotel byggingunni í Shinjuku stutt frá stöðinni.

UNIQLO (Shinjuku)
東京都新宿区歌舞伎町1-30-1
Shinjuku-ku, Kabuki-cho 1-30-1 (Kort)

Coins Bar 300

Í Shibuya eru margir barir en fáir eru jafn ódýrir og þessi.  Coins Bar 300 er lítill bar staðsettur í recomura eða plötubúðahverfinu í Shibuya sem er rétt rúmlega 5 mínútna labb frá lestarstöðinni.  Til að komast þangað er best að koma sér til Dance Music Records eða DMR og þar er þetta í kjallara (sjá kort fyrir DMR hér).

Eins og nafnið gefur örlítið til kynna geturðu keypt drykki fyrir klink, eða 300 yen.  Einnig er hægt að fá einhverja létta rétti fyrir sama pening.  Oft er mikið að gera þar og getur verið erfitt að fá sæti og því er best að mæta snemma og jafnvel hafa þetta fyrsta stað kvöldsins.

Coins Bar 300
東京都渋谷区宇田川町36-2 B1F
Shibuya-ku, Utagawa-cho 36-2 B1F (Kort)